Auglýsing

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

2010 Besta ár lífs míns??

25. janúar 2010 klukkan 21:40
Langar að gera smá könnun og æfa sköpunargáfuna í leiðinni. Datt hérna inn fyrir slysni og fór að lesa gömu færslurnar mínar. Gaman að rifja þetta upp. Svo ég er að spá í að prufa að henda inn smá tjáningum hérna enn eina ferðina og sjá hvort einhver kíki alveg óvart hingað inn, sem væri reyndar mjög furðulegt þar sem ég hef ekki bloggað hérna síðan 2008. Smile

Ég er komin í enn eitt átakið þetta árið sem kemur svosum ekkert á óvart. Spurningin er hversu lengi það muni endast. Ég var mikið að pæla í því hvernig ég gæti nú komið mér almennilega af stað og farið að æfa af viti. Fæstar vinkonur mínar eru að æfa í World Class eins og ég og komast enn færri á sama stað og á sama tíma og ég og það er svo miklu erfiðara að koma sér af stað ef maður er alltaf einn. Þá allt í einu datt mér í hug Kristín Gríms. Hún hefur alltaf verið svo dugleg að æfa og með mjög svipaða hugsun eins og ég og býr í Kópavogi eins og ég. Svo ég setti mig í samband við hana og nú erum við komnar á fullt sem ég gæti ekki verið ánægðari með. Við byrjuðum á því að skrá okkur í líkami fyrir lífið áskorun og stefnum á fitness í nóvember. (spurning hvernig það á samt eftir að ganga, en kemur í ljós) Alla vega mjög spennandi..Smile Ákváðum að prófa Max-OT æfingarprógrammið inn á progress.is en það er akkurat 12 vikna prógramm líka eins og líkami fyrir lífið áskorunin er, svo það hentar mjög vel. Mætum núna helst á hverjum virkum morgni klukkan 06:30 í ræktina. Hún tekur kallinn sinn með og ég er búin að vera frekar dugleg að draga hann Sverrir vin minn með líka. Við stelpurnar höfum svo góð áhrif, alveg ótrúlegt..Wink hehe.. Síðan mætum við alltaf í Hot yoga á fimmtudögum eftir vinnu og ég í nútímadans á mánudagskvöldum og ætla að stefna á að mæta í hot yoga á laugardögum líka. Finnst það rosa gaman. Og nýjasta nýtt er að ég ætla að byrja að hlaupa upp ca 16 hæðir í turninum á hverri æfingu þar. Mjög hressandi en ég byrjaði á því í dag.

Það er sem betur fer margt búið að gerast síðan ég bloggaði síðast. Er búin að læra einkaþjálfarann, fór í pásu í skólanum.. Veit bara ekkert hvað mig langar að gera, hvort ég eigi að klára viðskiptafræðina eða fara í eitthvað allt annað. Svo margt sem mig langar að gera. Er hins vegar enn að vinna í Lansbankanum og er að leigja í Kópavogi. Er búin að byrja og hætta í sambandi og já partur af planinu um að koma mér í geggjað form er að ég er hætt að drekka þangað til í desember, sem gera 48 edrú helgar í röð. Eru nú þegar komnar 4 og mér finnst það minsta mál í heimi hingað til..Laughing Báðar yngri systur mínar eru búnar að eiga litla sæta stráka og Unnur vinkona og Rúna frænka eru óléttar núna, ásamt fleirum. Allt að gerast í barna málunum. Ég samt alltaf jafn róleg í þessum pakkamálum.

Nenni nú ekki að skrifa meira í bili þar sem þetta er fyrsta færslan eftir 2 ár ca og ég orðin mjög riðguð í svona skrifum. Fyrir utan það að ef svo ólíklega vildi til að einhver rambaði hérna inn þá nennir enginn að lesa heila ritgerð..Tongue out

Spennandi að sjá hvort ég eigi eftir að tjá mig meira á þessu ári eða hvort ég láti líða 2 ár aftur..

Adios í bili alla vega..Smile

Ruglingslega samantekt síðan síðast..

02. júlí 2008 klukkan 23:34
Elú..

Er ekki byrjuð aftur, en langaði samt að tjá mig smá..:p Var að lesa gamlar færslur, þ.e.a.s. þeim sem ég er ekki búin að eyðaÓákveðinnog finnst frekar fyndið að lesa þetta. Fannst allt hljóma svo hrikalega gáfulega þegar ég skrifaði þetta en núna finnst mér þetta allt frekar kjánalegt.. haha.. En það er í lagi..Brosandi

Veit ekki alveg um hvað ég á að tjá mig hér samt.. En skiptir kannski ekki öllu máli þar sem ég ætla ekkert að segja neinum að ég hafi verið að blogga og það væri mjög furðulegt ef einhver myndi ennþá nenna að kíkja og athuga hvort ég væri búin að skrifa eitthvað.. Ullandi

Tíminn líður samt ekkert smá hratt.. Það eru einungis nokkrar helgar í Þjóðhátíð 2 hjá mér.. Sem verður án efa jafn mikil ef ekki meiri snilld en sú síðasta, þó það sé erfitt að toppa hana.. Vona bara að það verði jafn gott veður og síðast.. Það væri best í heimi..

Það sem ég er búin að vera að gera síðan síðast er ekki mjög merkilegt.. Ég er búin með eitt ár í HÍ og er að fara að byrja á öðru núna í haust.. Man ekki hvort ég hafi verið byrjuð að leigja á stúdentagörðunum þegar ég bloggaði síðast en bjó alla vega á þeim þangað til í maí en þá flutti ég til hans Elvars míns og í herbergið hans Jóns bónda.. Verður gaman að fá Jón suður aftur en versta er að í haust, flytur Jón og Steini alfarið hingað inn og þá er ekkert pláss fyrir Siggu litlu lengur. Jón gleymdi alveg að hugsa út í að kaupa íbúð með auka herbergi fyrir mig.. Algjör skandall.. hehe.. Líklegast er að ég endi þá á stúdentagörðunum aftur í haust.. Er alla vega með laust pláss þar..
Ég er ekkert búin að djamma svo mikið.. Ekki nema bara næstum hverja einustu helgi síðan ég flutti suður í febrúar í fyrra.. Fyrir utan smá pásu þegar prófin voru og í jan og feb þegar ég var að vinna eins og mófó öll kvöld og allar helgar.. Tróð samt stundum smá djammi inn svona eftir vinnu annað slagið..
Ég er búin að kynnast endalaust mikið af yndilsegu fólki og bara gæti hreinlega ekki verið ánægðari.. Er samt reyndar enn á lausu.. Já ég veit, er ekki að standa mig.. Eða hvað? Það fer eftir því hvernig maður lítur á það..

En jæja nenni ekki að skrifa meir.. Kemur í ljós hvenar ég hlunka mér í þetta aftur næst..
Adios..

HÆTT að BLOGGA!!!

26. nóvember 2007 klukkan 23:02
Er hætt að blogga í bili, nenni þessu ekki.. So sorry guy's.. Hver á eftir að sakna mín? Ef enginn commentar tek ég því þannig að enginn muni sakna mín..Ullandi

Ég get samt alveg sagt ykkur hvernig hlutirnir eiga eftir að vera hjá mér næstu daga/mánuði. Ég á eftir að læra, DJAMMA, vinna, vinna meira þar sem sumir eru fátækir námsmenn, fara norður um áramótin, byrja að hjóla út um allt þar sem pabbi er að koma með hjólið mitt í bæinn, hitta vini mína eins mikið og ég get, fara í átak, hætta í átaki og byrja aftur í því og svo hætta enn aftur..Glottandi En það sem ég á eftir að gera mest af öllu er að láta mér líða vel, hugsa jákvætt og brosa daginn út og inn.. Njóta þess að vera til, þó ég sé ekki endilega alltaf að gera akkurat það sem mig langar mest að gera..Hlæjandi

Þangað til einhverntíman..
Kveðja Sigguling..Koss


p.s. kann einhver að henda út gömu færslunum án þess að þurfa að gera eina í einu, eða fela þær bara?

Ein besta helgi ever..:)

09. ágúst 2007 klukkan 22:30













UllandiHlæjandi..I love you all guys..Þið eruð yndisleg..KossGlottandi

Hvað á að gera um versló?

08. júní 2007 klukkan 23:34
Geðveikt skrítið hvernig hlutirnir virðast alltaf koma í törnum.. Alveg sama hvort það sé í vinnunni eða bara í lífinu.. Í vinnunni er kannski ekkert að gera og svo allt í einu koma allir inn á sama tíma og brjálað að gera í smá stund og svo aftur ekkert.. Þið kannist öll við þetta.. Svo ég sé smá spekingsleg þá er Þetta eins í lífinu nema í staðin fyrir lítið og mikið að gera þá eru það góðir eða slæmir hlutir sem vilja fylgast að og koma allir á sama tíma.. Mér finnst það reyndar frekar fyndið..
Nú er óhappa tímabil hjá mér.. Alls ekkert alvarlegt en alls konar litlir hlutir.. Er samt rosa happy, en ég var t.d.. :
  • Ég var tekin fyrir of hraðan akstur og fékk 50 þúsund króna sekt..
  • Ég týndi símanum mínum á staffadjammi í bænum.. Týndi svo öllum sem ég var með og endaði því ein í bænum með enga gistingu og kunni engin númer hjá neinum sem ég þekkti sem mögulega gæti verið að djamma nálægt mér..
  • Fyrr um kvöldið var hellt rauðvíni yfir mig..

Fallegt, ekki satt?

Þetta voru sökudólgarnir..
  • Og svo dó myndavélin.. Gat bara tekið nokkrar myndir.. Óki það er kannski meira klaufaskapur en óheppni, en samt..
  • Missti naflalokkinn úr mér í vinnunni og týndi kúlunni..
  • Þráðlausanetið virkaði ekki lengur hér heima..
Og alveg hellingur af svona fáránlegum og fáránlegri hlutum sem ég annað hvort nenni ekki að telja upp hér, man ekki núna eða er prívató..

Vonandi fer þessari óhappa törn hjá mér samt að ljúka og happa törn byrji í staðin.. Ég var alla vega að panta mér far á þjóðhátið.. Fékk síðasta plássið í ferjunni út í eyjuna :o) Hlakka geggjað til, hef aldrei farið og ákvað því að láta verða að þessu loksins þó ég eigi ekki mikinn pening og er að fara í HÍ í haust og vonandi að leigja.. þá lifi ég bara einu sinni mér vitanlega og það er nú kominn tími til að ég fari að láta verða að þessum hlutum sem mér hefur lengi langað að gera en fresta alltaf..

Nenni ekki að blogga meira.. Veit ekki hversu dugleg ég verð að blogga í sumar, kemur í ljós.. Fer held ég líka eftir því hvað þið eruð dugleg að commenta hjá mér.. Ég er samt reyndar komin með myspace síðu, sem ég kann reyndar ekkert á en er að læra.. Meigið alveg adda mér sem vin ef þið eruð með síðu, er að safna ;o) Síðan mín er myspace.com/thesigga , getið líka klikkað HÉR :o)

Arrrggg!!!

28. maí 2007 klukkan 01:12
Talandi um að ég væri óstöðandi í síðustu færslu.. Yeah right!!! Var sko STÖÐVUÐ áðan..Öskrandi Og af LÖGGUNNI.. Dem, fæ örugglega 50 þúsund kall í sekt..Öskrandi Var tekin á 94 þar sem hámarkshraðinn var 50..Öskrandi Ljóta reykjanesbraut..Öskrandi Maður fattar ekkert að hægja á sér allt í einu niður í 50 hjá voga afleggjaranum og svo aftur hjá Grindavíkurafleggjaranum var tekin hjá vogunum..Gráta En vá þýðir ekki að spá í því. Fer þá bara á hausinn.. Fattaði samt ekki fyrr en ég var að keyra í burtu hvað þetta var mikið, var alveg á 44 km yfir hámarkshraðaÖskrandi, var skíthrædd um að missa prófið.. En held það gerist nú samt ekki..

Þetta var ekkert spes endir á samt mjög góðum degi.. Byrjaði á því að fara út að skokka þegar ég vaknaði, hljóp 2 og hálfan km, ekkert smá stollt að hafa nennt ein.. Þegar ég var svo tekin var ég að koma úr bænum frá Magnúsi og Líney.. En var að hangsa með þeim.. Ekkert smá langt síðan ég hitti þau, held ég ekkert síðan ég flutti suður, fyrir utan smá stund þegar ég sótti þau á flugvöllinn eftir að þau komu frá USA.. Við fórum í Keilu (eins og venjan er þegar akureyringar koma suður), fórum svo í perluna og fengum okkur ís og ætluðum svo að kíkja í fjölskyldugarinn og leika okkur á einhverju trampolíni en það var nottlega lokað.. Þannig að við fórum bara í göngutúr í garðinum þarna við hliðina á.. Og misstum okkur á myndavélinni, geggjað gaman samt.. Eftir það fórum við bara og fengum okkur að borða og svo var slakað aðeins á.. Þetta var samt mjög skemmtilegur dagur og ekkert smá gott veður..

Við systkinin ég elst en samt minnst.. Ekki alveg sanngjarnt..





Líney alveg að detta..

Töff mynd..

Þetta líka..









Það eru fleiri myndir HÉR .. En eins og þið takið kannski eftir þá eru geggjað margar myndir brúnar á litin, en okkur fannst það lang flottast..

Hef annars ekki meira að segja, varð bara að tjá mig um sektina.. Er að reyna að svekkja mig ekki á þessu því þetta eru nú lögin og það er ekki eins og ég vissi ekki af þessu.. Reyndar fattaði ég ekki að það væri 50 km en skiptir ekki.. Þetta er samt geggjað svekkjandi.. Endilega einhver hressa mig við.. Akkurat núna vildi ég að ég ætti kærasta, veit að geggjað xxxxxx og svo xxxx myndi laga allt..GlottandiUllandi

Alveg óstöðvandi..;)

22. maí 2007 klukkan 00:35
Ég og Unnur fórum á Domo.. Það varð nú samt reyndar ekki jafn mikið blinda fyllerí úr því eins og átti að vera.. Ég fór beint til Unnar eftir vinnu og við tókum okkur til byrjuðum að drekka og tókum nokkur vel valin hænsnaspor..Glottandi (smá einkahúmor) Tókum svo Taxa alveg eldhressar niður á Domo.. Við voða grand á því eins og alltaf og byrjuðum á því að panta okkur shushi í forrétt saman og svo sitthvorn aðalréttinn og rándýra hvítvíns flösku.. Þegar við vorum samt rúmlega hálfnaðar með forréttinn vorum við alveg að springa og Unnur að deyja (greyið kann ekki að drekka lengur gamla mamman) hehe..Ullandi Þannig að við enduðum með að vera algjörir aular og afpanta aðalréttinn.. En það var bara betra sushi-ið var svo gott og hollt að það þurfti sko ekkert að hafa samviskubit yfir að hafa hámað það í sig.. En ákváðum nú samt að fá okkur eftirrétt til að vera ekki alveg glataðar.. Ég fékk með geðveikt góða súkkulaði köku.. Já ég veit öll einkaþjálfunin farin út um gluggan, reyndar í milljónastaskiptið síðan ég byrjaði í þessu átaki.. Já ég viðurkenni það, er farin að verða soldið efins um að ég eigi eftir að ná markmiðinu mínu.. En jæja, ég er samt flott..Glottandi hehe.. Það er skárra að setja sér markmið og ná þeim ekki heldur en að hafa engin markmið.. Eða því ætla ég alla vega að halda fram í bili..Ullandi Við kíktum aðeins á Oliver en enduðum svo eins og áður þegar við höfum farið út að borða áður en við fórum á djammið að fara heim með Hilmari..Glottandi Reyndi að segja Unni þetta.. En við BORÐUM EKKERT næst þegar við ætlum á djammið eftir 7 og þá bara eitthvað lítið, rúsínur eða eitthvað..haha..

Unnur Skvís

Mmm..

Þetta samt ennþá betra..Glottandi

Unnur Takk samt fyrir kvöldið elskan, þetta var mjög gaman..Koss

Ég þurfti hvort eð er að vakna snemma daginn eftir því ég var að fara í einkaþjálfun í kef í hádeginu.. Mætti þangað og það var ekkert eins og ég hefði verið að drekka kvöldið áður.. Var bara í mínu besta formi og rústaði Dírce sem var bara edrú heima kvöldið áður..Ullandi Hún með voða yfirlýsingar að hún ætlaði að sigra mig morguninn eftir en mætti svo ekki einu sinni.. Þannig að Dírce mín ég hef ekkert að segja nema bara "þetta er búið hjá þér elskan" þýðir ekkert að reyna að ná stóru systur..Glottandi

Ég losnaði svo seint úr vinnunni um kvöldið að ég komst ekki í rassastinninguna mína eins og ég ætlaði í englakroppum, þannig að ég þurfti að fresta því.. En skellti mér þá bara aftur í ræktina, í þetta skiptið í DVD tónleika spinning.. Var ekkert smá stollt af mér að hafa farið tvisvara í ræktina þann daginn, en það er held ég kominn tími til að ég fari og taki mig almennilega á svo ég geri mig ekki að algjöru fífl í lok einkaþjálfuninnar.. Kíkti svo aftur í bæinn og hitti Írisi mína, en hún var í heimsókn frá Ak city..

Ég held ég geti farið að keyra reykjanesbrautina blindandi.. Því ég keyrði svo aftur heim um nóttina og vaknaði svo snemma daginn aftur og í bæinn enn eina ferðina, fyrst í plokkun svo í búðaráp með Írisi en við keyptum okkur báðar djamm föt fyrir kvöldið en við ætluðum á Trente Möller á Gauknum um kvöldið.. Eftir margra klukkutíma ráp fórum við í Perluna og fengum okkur ís og fórum svo í sund í Laugardalslögina og lentum í einhverjum alalegum perra sem skiptistá að stara á okkur, loka svo augunum og stynja.. Ekki spes, enda vorum við ekki lengi að færa okkur í felur frá honum.. Ekkert smá ógeðslegur.. En fórum svo heim að drekka eftir sundið og taka okkur til..Brosandi Fórum svo á djammið.. Bergþóra og Stína komu og sóttu okkur og við fórum smá rúnt áður en við fórum á Gaukinn.. Geggjað stuð þar.. Samt ekkert smá mikið að skrítnu liði.. Alla vega annaðhvort það, eða ég er bara farin að sjá eitthvað skrítið eða það er bara ég sem er skrítin.. Finnst alltaf svo mikið af skrítnu fólki hvar sem ég fer.. Ég og Íris fórum svo heim að kúra saman með marðar tær..



Algjör pönkari..Glottandi

Daginn eftir vöknuðum við svo frekar snemma og ekkert þunnar.. Ekkert smá næs.. Mér fannst ekki einu sinni eins og ég hafði verið að djamma en samt drakk ég nú alveg slatta.. Fórum og fengum okkur að borða og aftur í kringluna.. Ég fór svo heim í Sangerði um þrjú leytið, kveikti á tölvunni, lagðist upp í rúm og steinrotaðist þangað til Dírce kom og vakti mig..
Já Íris, þetta var geggjað skemmtileg helgi og endilega reyndu að kíja aftur suður sem fyrst.. Hafðu það sem allra best sæta mín.. Takk fyrir mig..Koss

Fórum svo í Kef um kvöldið að horfa á FH spila á móti Keflavík.. Geðveikt skrítið veður samt, skiptist á að vera sólskin og haglél.. Ég segi nú bara aumingja leikmennirnir.. En þeir lifðu þetta allir af.. Það var samt einn áhorfandinn fluttur í burt með sjúkrabíl á meðan að á leiknum stóð.. Vona bara að allt hafi verið í lagi, veit ekki alveg hvað gerðist en mér var sagt að hann hefði fengið hjartaáfall.. En veit samt ekkert um það en vona samt að allt sé í lagi núna.. Agalegt samt..Fýldur En FH vann leikinn að sjálfsögðu 2-1.. samt með herkjum.. Fannst þeir nú ekki alveg vera í sínu besta formi, en hvað veit ég..

Ætlaði svo aldrei að geta vaknað í morgun.. Ekkert smá erfitt, þreytt eftir helgina greinilega.. Fór svo í rassastinninguna mína í Englakroppum eftir vinnu í dag..Skömmustulegur Geggjað næs.. Brosandi Verður gaman að sjá hvort það verður einhver munur eftir þetta allt saman..

En vá er búin að skrifa alltof mikið eins og vanalega, og er að lognast útaf hérna úr þreytu.. Er að fara í einkaþjálfun í fyrramálið þannig að ég ætti að vera löngu farin að sofa.. En festist í símanum í einhverja tvo tíma áðan, allt í góðu með það.. Gaman að heyra í þér elskan.. En Unnur býst við bloggi og ég vildi ekki valda henni vonbrigðum, á ekki eftir að hafa tíma til að blogga næstu daga en verð að vinna níu til níu alla vega fram á fös og svo alltaf nóg annað að brasa..

Fáið verðlaun ef þið nennið að lesa allt þetta.. hehe.. Býst ekki við að margir nenni því..

En þangað til næst..
Siggan..Saklaus

Glatað blogg.. Ekkert að gerast..

14. maí 2007 klukkan 20:43
Er búin að vera eitthvað voðalega róleg undanfarið.. Fór á vorfögnuð Vísa með henni Beggu minni á föstudaginn en við stoppuðum voða stutt.. Vorum báðar edrú, ég vegna þess að ég bý í Sandgerði og nennti ekki að gista í bænum eða vesenast með far og Begga því hún er einfaldlega bara orðin svo gömul..Glottandi Hehe djók Begga mín.Koss Ég skilaði svo Beggu til síns heittelskaða en var sjálfri svo boðið út að borða og í bió og tók svo við smá rúntur.. Komum við á einni bilasölu.. Og ég er ástfangin.. Langar í Bens E Class.. Geggja flottur en aðeins út fyrir "my money range"..Gráðugur Alla vega í bili..
Laugadeginum eyddi ég svo bara heima í Sandgerði.. Það var rosa flottur matur og læti og öll familýan heima saman og horfa á Eurovision.. Seinna um kvöldið fórum svo ég Dírce, Haukur, Svenni og Ragnhildur á Mama Mía hér í Sandgerði en það var sem sagt verið að opna hann hér á  nýjum stað.. Var ekki búin að labba inn þegar ég var umkringd og boðið á barin.. Hehe.. Geggjað fyndið á svona litlum stöðum hvað maður fær mikla athygli þegar maður er "nýr" í bænum..Brosandi Það var ágætt þar en voru samt ekkert svo margir og enduðum við svo öll í kef.. Ætluðum á Trix, en Siggu gáfuðu datt ekki einu sinni í hug að það gæti kostað inn að ég skyldi veskið mitt eftir heima.. Það var hvort eð er enginn að tíma að borga sig inn þannig að við fórum bara á Paddy´s.. Ekkert smá mikið að skrítnu liði þarna.. Aðeins of mikið að mínu mati.. Hlakka til að flytja í bæinn..Brosandi

Í dag fór ég svo eftir vinnu á Englakroppa í Grafarvoginum.. Gæti reyndar varla verið lengra í burtu fyrir mig.. En vissi ekki hvar þetta var fyrr en ég var að leggja af stað og löngu búin að panta tíma og svona.. En þetta var rosa næs.. Og Unnur spreð gerir ekki annað en að smita mig þannig að ég endaði með að kaupa mér einhvern feikna pakka.. Ég verð orðin ENGLAKROPPUR áður en þið vitið af.. Einkaþjálfunin og svo þetta ofan á.. Vildi bara að ég gæti tekið mig á í matarræðinu en ég virðist bara einfaldlega ekki geta það.. Þannig að þetta verður að duga..

Fer kannski á Josh Groban tónleikana á morgun.. En það var verið að hringja í mig og bjóða mér á þá.. Veit samt ekki hvort ég komist.. Fannst þetta líka vera of dýr pakki til þess að láta bjóða mér.. En ætla að hugsa málið..Brosandi Hef aldrei farið á tónleika áður..

Unnur gella var svo að hringja í mig og spyrja mig hvort ég vildi ekki fara með henni út að borða á Domo og taka svo eitt gott djamm á eftir.. Eins og ég sagði Unnur spreð..hehe.. En það er sem sagt planið.. Detta feitt í það á miðvikudaginn.. Komið nóg af rólegheitum hjá mér í bili held ég nú..

En annars hef ég ekki meira að segja.. Ekkert merkilegt í fréttum hjá mér eins og er.. Alla vega ekkert sem ég get verið að tjá mig um hér..GlottandiUllandi En eitthvað verð ég að skrifa til að halda þessu gangandi..

Megið kvitta beibís..

%

08. maí 2007 klukkan 13:12

Búin að fá mér nýja myndavél.. Canon Ixus 70.. Geggjuð vél.. Þannig að þetta var lán í óláni.. Vissi alveg að föstudagurinn þrettándi myndi ekki bregðast mér..Glottandi Þannig að passið ykkur sem mætið mér að fá ekki ofbirtu af flassinu..Ullandi

Fór í ræktina í morgun.. Átti að mæta í einkaþálfun með Dírce, en hún beilaði því hún sagðist vera með svo mikinn hausverk.. Og ekki nóg með það heldur beilaði einkaþjálfarinn minn líka..Öskrandi Þannig að ég endaði þarna bara ein.. Rosa dugleg hljóp í 20 mín og svo á skíðavélinn í 10 mín.. Eina sem er að standa mig í þessu íþróttasambandi.. hehe.. Er samt fegin að hann lét mig ekki vita fyrr, því þá hefði ég örugglega ekki nennt að mæta.. Átti að fara í fitumælingu þrjú á morgun en það frestast örugglega um einn tíma því þjálfarinn mætti ekki.. Þannig að stóra stundin verður örugglega ekki fyrr en á fös..Glottandi

Unnur mín ég kem til þín eftir neglur í kvöld..Koss

(p.s. er geggjað stollt af mér að geta haft þetta svona stutt, það var ekkert smá erfitt..hehe)

Eru það loksins eyjar eða???

03. maí 2007 klukkan 23:34
Jæja blogg fyrir Unni..GlottandiUllandi

Hmm.. Hvað er að frétta?

Já.. Er svona nokkurn vegin búin að ákveða að skella mér til eyja um versló..Brosandi Hef aldrei farið en lengi langað.. Var að tala við Guffu um daginn og hún hefur heldur aldrei farið, þannig að ég held það sé tími til að skella sér.. Eru ekki fleiri til í að koma? Spurning um að safna saman fullt af liði og gera alvöru úr þessu? Það væri geggjað..Hlæjandi Ef ég fer ekki þangað, enda ég pottþétt fyrir norðan, en þar sem að aðal djammfélaginn minn (Fjólulíus) er frá góðu gamni (drykkju og djammi) þá held ég að eyjar freisti mín miklu meira..hehe..


Hmm.. Já fór líka í "myndatöku" um daginn í Kef.. Fór nefnilega í partý til Óla kærasta Jóu um daginn (eins og ég var held ég búin að tjá mig um hér) og þar kynntist ég nokkrum skemmtilegum gaurum.. Einn af þeim heitir Sveinn en hann var að tala um að hann væri að fara að læra ljósmyndun og eitthvað og fór að tala um að taka myndir af mér, hélt samt að hann væri að djóka.. En svo heyrði hann í mér síðustu helgi og spurði mig hvort ég væri ekki til í að kíkja til hans í smá ljósmyndun..Ullandi hehe.. Hann var búin að leigja sér einhver stúdíóljós og læti og auðvitað skellti aðal módelið sér á staðinn..haha..Glottandi Var samt alveg glötuð.. Við nottlega þekktumst ekki neitt og þetta var eitthvað voðalega kjánalegt.. Þorði ekki að gera neitt, stóð bara þarna eins og auli á meðan hann smellti af nokkrum myndum.. Alveg furðulegt að eitthvað skyldi hafa komið út úr þessu, en myndirnar í hausnum hér eru síðan þá.. Er rosa stollt af auganu mínu, eins og þið sjáið kannski..hehe..Brosandi
Ætla svo að fara aftur seinna, en draga þá Jóhönnu með mér.. Þá þori ég örugglega að fíflast miklu meir og sleppa af mér beislinu..haha..Glottandi


Rúna frænka átti svo afmæli 30 apríl.. Alltaf frí daginn eftir afmælið hennar.. Enginn smá lúxus.. En hún bauð okkur í svaka flott teiti, enda var hún þrítug gellan.. Verður bara sætari með hverju árinu samt..Brosandi Kossar og knús til þín sæta mín..Koss Svo má reyndar ekki gleyma Einari en hann átti afmæli 28 apríl.. Svo stutt á milli þeirra skötuhjúanna og auðvitað fær hann afmæliskveðju frá mér líka..Brosandi Hann fær líka bestu þakkir frá mér og UnniGlottandi því það var hann sem átti hugmyndina að því að ég flutti suður.. (skila kveðju frá þér Unnur líka, því ég veit hvað þú ert himinlifandi yfir þessu öllu saman.. Að hafa fengið mig suður til þín..hehe..Ullandi)


Get því miður ekki sett myndir inn af herlegheitunum þar sem að mér tókst að eyðileggja myndavélina mína á staffadjamminu í bankanum.. Föstudaginn 13 apríl..Hissa Og ég sem hélt að þetta væri happadagurinn minn.. Reyndar var þetta kannski lán í óláni, því ég var nú ekkert of hrifin af myndavélinni minni og þar sem að pabbi snillingur tryggði hana má ég koma og sækja mér nýja því mér tókst greinilega algjörlega að eyðileggja þessa.. Þeir ætla ekki einu sinni að reyna að gera við hana.. Og þá er ég er að vonast til að meiga kannski skipta henni í einhverja aðra betri og borga þá kannski eitthvað smá á milli..Brosandi


Hvað er málið samt með að allir eru að missa trúna á að ég muni ná markmiði mínu? Prósentan í könnuninn hjá þeims sem hafa óbilandi trú á mér er alltaf að minnka og minnka.. Er ég svona augljóslega búin að klúðra þessu?Glottandi hehe.. Kemur í ljós..Ullandi


Eitt að lokum.. Er svo geggjað gleymin, en þar sem ég kíki yfirleitt á bloggið mitt á hverjum degi, sérstaklega í vinnunni þegar er dauð stund, sem verður vonandi á morgun.. þá ætla ég að setja smá minnislista fyrir mig hérna.. Þið verðið bara að afsaka.. En þarf að muna að :
  • Fara með bílinn minn í smurningu, helst á morgun.. Á að vera löngu farin með hann..
  • Panta mér tíma í lagfæringu á nöglunum..
  • Sækja nýja myndavél í Elko..
  • Borga staðfestingargjaldið í Háskólann..
  • Kaupa dekur fyrir sjálfa mig, til að gera mig fína og sæta..
  • Og sömuleiðis fyrir bílinn minn.. Tími til kominn að fara að taka hann í gegn að innan..
Jæja man ekki eftir fleiru í bili..

Bið að heilsa.. Megið skilja eftir smá spor..KossBrosandi

Prófíll

  • Nafn: Sigríður Jóhannsdóttir
  • Netfang: svalt@hotmail.com
  • Staður: Reykjavík City..
  • Atvinna: Nemi..
  • Hjúskaparstaða: Free as a bird..:)
  • Um mig: Lovinglife..